27/04/2024

Vortónleikar Kórs Átthagafélags Strandamanna

 Vortónleikar Kórs Átthagafélags Strandamanna verða haldnir í Árbæjarkirkju sunnudaginn 13. maí kl. 16:00. Þar syngur kórinn undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur létt og skemmtileg lög. Undirleikarar eru Aðalheiður Þorsteinsdóttir á píanó og Matthías Stefánsson á fiðlu. Miðaverð er 2.000 kr. fyrir fullorðna , frítt fyrir börn 14 ára og yngri. Kórinn mun einnig halda tónleika í Vinaminni, safnaðarheimili Akraneskirkju, miðvikudaginn 16. maí kl. 20:00. Þar mun Arnhildur Valgarðsdótir sjá um stjórn og undirleik. Kórinn vonast til að sjá sem flesta.