25/04/2024

Vinnslustöðvun hjá Hólmadrangi

Nú er ljóst að til vinnslustöðvunar kemur hjá Hólmadrangi. Gunnlaugur Sighvatsson sagði að reikna mætti með 3 til 4 vikna stoppi á hefðbundinni vinnslu vegna hráefnisskorts, en sagði að hluti starfsfólks ynni tímabundið við að endurpakka rækju í neytendaumbúðir. Stjórn Hólmadrangs hefur jafnframt ákveðið að fastráðið starfsfólk haldi dagvinnulaunum sínum. Í dag var starfsfólk Hólmadrangs á námskeiði um gæði og öryggi í rækjuvinnslu sem haldið var af starfmanni frá rannsóknarþjónustunni Sýni.

 

 

Úlfar, Rósmundur, Gunnlaugur (sem að sjálfsögðu sat námskeiðið), Sigurlaug og Ágústa

Steinar, Hjörtur og Hafdís

Sigurlaug og Gústa

Keli, Ulrik, Þröstur og Njalli

Sumir voru ekki alltaf með hugann við námskeiðið

Ljósmyndir BSP