02/05/2024

Suðbyrðingur – saga báts – á Hólmavík

Heimildamyndin Súðbyrðingur – saga báts eftir Ásdísi Thoroddsen verður sýnd í Café Riis, sunnudagskvöld 23. október, klukkan 20:00. Ásdís sem er Strandamönnum að góðu kunn er nú gestur í Skelinni, lista- og fræðimannadvöl Þjóðfræðistofu. Í myndinni segir frá fjórum mönnum sem taka sér fyrir hendur að smíða bát eftir Staðarskektunni, sem fúnað hefur í grasi í Reykhólasveit. Samhliða því sem nýi báturinn tekur á sig mynd er sögð saga bátasmíða á Norðurlöndum. 

Byrjað er á kilinum, sem þróaðist frá eintrjáningi steinaldar, og svo þegar báturinn er byrtur er sagt frá skinnbátum bronsaldar og helluristum, fórnum á bátum og mönnum til ókunnra guða, en elsti súðbyrðingurinn sem vitað er um varðveittist á einum slíkum blótstað, sýnd hin glæstu skip víkingaaldar, sýndar myndir frá selveiðimönnum í Eystrasaltinu sem lögðust út á ísinn og sváfu í einkennilega löguðum bátum sínum, og áfram er smíðað, böndin og borðstokkarnir, og þá er komið til Færeyja þar sem keppt er í róðri í nýrri gerð af súðbyrðingum á Ólafsvöku. Að lokum er báturinn klár og seglin saumuð og þá er sjósetning og smiðirnir sigla út á Breiðafjörð, til fortíðar þeirra sjálfra, þar sem súðbyrðingar voru smíðaðir og notaðir – heima.

Báturinn er trúarlegt tákn. Í þessum báti sem kvikmyndin er, rúmast margt, svo sem handbragð, heiðindómur, verslunarsaga, veiði, dauði og hátíðir. Í gegnum báta og skip tengjast hættir og saga þeirra þjóða sem búa á Norðurlöndum.

 

Ljósm. frá Ásdísi Thoroddsen