29/04/2024

Reykhóladagurinn á laugardag

Í gönguferð á ReykhóladegiHaldið verður upp á Reykhóladaginn laugardaginn 30. ágúst og verður dagskráin með hefðbundnu sniði. Fjölskyldan á öll að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og notið dagsins saman, en á dagskránni sem gefur að líta hér fyrir neðan eru m.a. gönguferðir með leiðsögn, sýningar, sölubásar og barnaskemmtun, veisla, skemmtun þar sem Örn Árnason leikarinn góðkunni treður upp og ball í lokin. Strandamenn eru að sjálfsögðu hvattir til að fjölmenna yfir fjall og eiga góðan dag með nágrönnum sínum.

Dagskráin er svohljóðandi:
 
Kl 11:00 – ca. 13:00 Kílonsvatn
Gönguferð að Kílonsvatni. Mæting er við afleggjarann heim að Hafrafelli. Gangan er frekar auðveld og ætti því að henta öllum aldurshópum (erfiðleikastig: einn gönguskór). Björn Samúelsson mun sjá um leiðsögn í göngunni.

14:00 – 16:00  Hlunninda- og bátasafn
#   Hlunninda og bátasýning opin.
#   Ljósmyndasýning, ýmsar myndir úr Reykhólahreppi.
#   Lions félagar munu selja kaffi, kakó og vöfflur með rjóma.
#   Fornbíla og dráttarvélasýning.  Boðið verður upp á ferð um þorpið í gömlum heyvagni.
#   Hoppukastalar  fyrir börnin.
#   Ýmis hagsmunafélög á svæðinu verða með sölubása.
#   Grettislaug er opin og frítt er í sund allan daginn.

16:00 – 16:50 Barnaskemmtun
Gosi og kisa úr leikritinu um Gosa munu koma í heimsókn og skemmta börnunum. Barnaskemmtunin mun fara fram í gamla íþróttasalnum í Reykhólaskóla.

17:00 Gönguferð um Reykhóla
Mæting við kirkjuna og farið verður í létta gönguferð og áhugaverðir staðir skoðaðir undir leiðsögn Björns Samúelssonar.

20:00 – 03:00 Matur – skemmtun – ball.
Matseðill kvöldsins er grillað lamba- og hrefnukjöt, ásamt smá kræklingasmakki. Í desert verður boðið uppá súkkulaðiköku með rjóma og berjum.  Í boði verður ís fyrir börnin.

Veislustjóri er Örn Árnason. Að lokum mun hljómsveitin Karma sjá um að halda uppi fjörinu fram eftir nóttu.

Verð fyrir fullorðna fyrir mat, skemmtun og ball er 3.000 kr. Börn 12-15 ára 1.500 kr og frítt fyrir 11 ára og yngri. Vinsamlegast pantið tímanlega í matinn, í síðasta lagi á hádegi föstudaginn 29. ágúst. Borðapantanir í
síma 894-9123 Rebekka og 861-3761 Kolfinna. Vonumst til að sjá sem flesta hressa og káta.