29/04/2024

Blað brotið í menntamálum á Vestfjörðum

Heimasíða HáskólasetursinsÍ fréttatilkynningu frá Háskólasetri Vestfjarða kemur fram að næstkomandi sunnudag, 31. ágúst verður ný námsleið á meistarastigi við Háskólasetur Vestfjarða formlega sett af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra. Setningin markar tímamót, því með tilkomu námsleiðarinnar verður í fyrsta sinn boðið upp á staðbundið háskólanám, sem alfarið er kennt á Vestfjörðum. Af þessu tilefni verður einnig haldið málþing um sjálfbæra nýtingu íslenskra strandsvæða.

Sigríður Ólafsdóttir fagstjóri meistaranámsins mun stjórna athöfninni, en auk menntamálaráðherra flytja Peter Weiss, forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða, Halldór Halldórsson, formaður stjórnar Háskólaseturs og Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, stutt ávörp. Setningarathöfnin fer fram í Edinborgarhúsinu á Ísafirði kl. 16:00, en í tengslum við hana verður einnig blásið til málþings um sjálfbæra nýtingu íslenskra strandsvæða kl. 13:00 sem Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mun setja. Málþinginu verður svo framhaldið mánudaginn 1. september og stendur frá kl. 8.30-12.30. Á málþinginu munu innlendir og erlendir kennarar námsleiðarinnar, ásamt fleiri sérfræðingum, varpa ljósi á viðfangsefni haf- og strandsvæðastjórnunar. Meðal efnis á málþinginu eru rannsóknir á náttúru og nýtingu strandsvæða, skipulag á strandsvæðum og stjórnun þeirra.

Með setningu meistaranámsins í haf- og strandsvæðastjórnun stígur Háskólasetur Vestfjarða stórt skref í átt að þeim markmiðum sem sett voru fram í framtíðarsýn setursins í október á síðasta ári. Þau markmið fela meðal annars í sér að Háskólasetrið bjóði upp á hágæða alþjóðlegar námsleiðir á meistarastigi á fjölbreyttum sviðum sem öll tengjast málefnum hafs og strandsvæða. Námsleiðirnar verða allar settar á fót í samvinnu við innlenda og erlenda háskóla sem standa framarlega í viðkomandi grein.

Meistaranámið í haf- og strandsvæðastjórnun er þverfaglegt, alþjóðlegt nám á sviði umhverfis- og auðlindastjórnun með áherslu á haf- og strandsvæði, en sérhæft nám sem snýr að þessum mikilvægu svæðum hefur ekki verið í boði á Íslandi fyrr. Námið er sett á fót í samvinnu við Háskólann á Akureyri sem hefur umsjón með innritun og útskrift nemenda  jafnframt því að vera fræðilegur bakhjarl námsins. Kennarar námsleiðarinnar eru bæði innlendir og erlendir sérfræðingar á þeim fjölbreyttu sviðum sem námið tekur til. Mikil áhersla hefur verið lögð á að fá aðila til liðs við Háskólasetur sem bæði eru góðir kennarar og velmetnir fræðimenn á sínu sviði.

Inntak meistaranámsins við Háskólasetur Vestfjarða er í samræmi við áherslur Evrópusambandsins um samþætta stjórnun haf- og strandsvæða. Í því felst að málefni þessara viðkvæmu og mikilvægu svæða eru skoðuð út frá ólíkum sjónarmiðum með tilliti til efnahagslegra, félagslegra og umhverfislegra ábata. Slík nálgun er viðbragð við auknu álagi á haf- og strandsvæði sem hefur farið vaxandi vegna ásóknar í auðlindir, fólksfjölgunar og aukinnar uppbyggingar á strandsvæðum. Ennfremur má nefna loftslagsbreytingar og víðtæk áhrif þeirra á lífríki, lífsafkomu og samfélag manna en þar er um að ræða ófyrirséða atburðarrás sem mikilvægt er að stjórnvöld og samfélag séu í stakk búin að takast á við. Sérhæft nám sem tekur til þessara aðkallandi mála hefur ekki verið í boði á Íslandi fyrr og því má segja að námið sé svar við aðkallandi og knýjandi viðfangsefnum samtímans.

Allar nánari upplýsingar veita þau Sigríður Ólafsdóttir í síma 896-5874 og netfanginu sigridur@hsvest.is og Peter Weiss forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða í símum 450-3045 og 869-3045 og netfanginu weiss@hsvest.is.

Heimasíða Háskólasetursins er á slóðinni www.hsvest.is.