03/05/2024

Málþing um matartengda ferðaþjónustu

Rækja fyrir ferðamenn?Málþing um matartengda ferðaþjónustu verður haldið í Edinborgarhúsinu á Ísafirði laugadaginn 19. apríl nk. og stendur frá kl. 10.30-15.00. Á dagsskránni eru fyrirlestrar, kynningar á verkefnum og Vestfirðingar segja frá verkefnum á þessu sviði. Skráning fer fram hjá Ásgerði Þorleifsdóttur (asgerdur@atvest.is), sími 450-3053. Tilgangur málþingsins er að leita leiða til að þróa matartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum og hvetja heimamenn til að velja staðbundið hráefni.

Fengnir verða fyrirlesarar sem eru í fremstu röð á þessu sviði, m.a. frá verkefnunum „Matarkistan Skagafjörður“ og „Beint frá býli“. Einnig munu matarhönnuður og næringarfræðingur halda erindi, rætt verður um vestfirskar sælkeraslóðir og vöruþróun úr staðbundnu hráefni, auk þess sem heimamenn segja frá sínu starfi á þessu sviði.

Málþingið er ætlað öllum sem áhuga hafa á þessu málefni og eru aðilar í ferðaþjónustu, allt áhugafólk um vestfiskar matarhefðir, bændur, matvælaframleiðendur, veitingafólk, sultugerðarfólk, bakarar og allir aðrir áhugasamir hvattir til að taka þátt.

Skilgreina má matartengda ferðaþjónustu sem hluta af menningartengdri ferðaþjónustu, því mikilvægur hluti hennar er að bera á borð fyrir ferðamanninn matarmenningu svæða og með því upplifir ferðamaðurinn menningu svæðisins í gegnum matarmenningu og matargerðarlist.