28/04/2024

Hugað að umferðarörygginu

Handritið við HafnarbrautinaÞau eru margvísleg verkefnin sem starfsmenn Strandabyggðar taka sér fyrir hendur. Þegar fréttaritari strandir.saudfjarsetur.is átti leið um Hólmavík í dag voru þeir langt komnir við að setja upp handrið við Hafnarbraut 20, þar sem blint húshorn er nærri götunni til móts við Café Riis. Þarna eru líkur á börnum að leik og er ætlunin með handriðinu að auka öryggi gangandi vegfarenda.

Starfsmenn Strandabyggðar – ljósm. Jón Jónsson