05/05/2024

Bingó á Hólmavík á laugardaginn

Bingó verður haldið í Félagsheimilinu á Hólmavík á laugardaginn kemur, 4. desember, og hefst kl. 15:00. Um er að ræða styrktarbingó og rennur allur ágóði í söfnun fyrir Rósu Jósepsdóttur bónda í Fjarðarhorni í Hrútafirði, sem nú glímir við bráðahvítblæði. Hennar bíður löng sjúkrahúsvist í Svíþjóð þar sem hún þarf að gangast undir mergskipti. Það eru vinir og frændfólk sem standa fyrir bingóinu og eru mjög góðir vinningar í boði. Verð á spjaldinu er kr. 500.-