25/04/2024

Nýtt starf félagsmálastjóra á Ströndum og Reykhólahreppi auglýst

Sveitarfélögin Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð og Reykhólahreppur hafa auglýsa nýtt starf sameiginlegs félagsmálastjóra laust til umsóknar. Um er að ræða 70% starf með möguleikum á viðbótarverkefnum hjá sveitarfélögunum og er umsóknarfrestur til 12. desember. Í auglýsingu kemur fram að leitað er eftir einstaklingi sem hefur áræðni og dug til að vera leiðandi í uppbyggingu og þróun á félagsþjónustu á svæðinu. Félagsmálastjóri á að vinna náið með nýrri sameiginlegri velferðarnefnd sveitarfélaganna fjögurra og mun starfið krefjast ferðalaga um svæðið. Staðsetning meginsstarfsstöðvar félagsþjónustunnar verður ákveðin í samráði við nýjan félagsmálastjóra.

Helsta starfssvið félagsmálastjóra:

  • Almenn fagleg félagsleg ráðgjöf
  • Yfirumsjón með málefnum fatlaðra
  • Móttaka og úrvinnsla á umsóknum um fjárhagsaðstoð
  • Mannaforráð og skipulag félagslegrar heimaþjónustu
  • Forvarnir, fræðsla og samskipti við íbúa í sveitarfélögunum
  • Önnur málefni félagsþjónustu sem upp koma á svæðinu

Hæfniskröfur:

  • Félagsráðgjöf, þroskaþjálfun eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla og framhaldsmenntun í stjórnun æskileg
  • Reynsla af starfi við félagsþjónustu, málefni fatlaðra eða sambærilegum störfum mikilvæg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, forystu- og skipulagshæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð tölvukunnátta
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti

Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað til skrifstofu Strandabyggðar, Hafnarbraut 19, 510 Hólmavík. Sími er 451-3510 og netfang: holmavik@holmavik.is.