24/04/2024

Skoðanakönnun vegna Staðardagskrár

Nú stendur yfir skoðanakönnun vegna vinnu við mótun Staðardagskrár 21 fyrir Strandabyggð og er hægt að taka þátt með því að fylla út eyðublað undir þessum tengli. Allir sem vettlingi geta valdið eru hvattir til að taka þátt, en Staðardagskráin er hugsuð sem velferðaráætlun þar sem horft er á þróun samfélagins til langs tíma. Umhverfisnefnd Strandabyggðar sér um undirbúninginn og eru lesendur strandir.saudfjarsetur.is beðnir um að tilgreina 5 málaflokka sem þeir vilja sjá fjallað um í slíkri áætlun.