04/05/2024

Pub Quiz og pizzur á Café Riis

BírÍ kvöld, föstudaginn 2. október, fer fram Pub Quiz keppni á Café Riis á Hólmavík. Þetta er fyrsta keppni vetrarins, en stefnt er að því að halda keppnir eins og þessa fyrsta föstudag hvers mánaðar á Café Riis. Keppnin í kvöld hefst laust eftir kl. 21:00, en fyrir það verður hægt að kaupa pizzur frá kl. 18:00-21:00. Arnar S. Jónsson verður spyrill og verða spurningarnar almenns eðlis. Gestir keppa í tveggja manna liðum og það lið sem hefur flest svör rétt fer með sigur af hólmi og fær í kjölfarið kassa af svalandi vökva. Barinn á Riis verður að sjálfsögðu opinn á keppninni og svo fram á miðnætti.

 Hér gefur að líta reglur keppninnar:

1) Keppnin gengur undir nafninu Drekktu betur – á Hólmavík.
 
2) Spyrill mætir með 30 spurningar í farteskinu.
 
3) Gestir mæta með góða skapið og pening fyrir kaffi og/eða bjór. Þeim er ætlað að fá sér sæti og skemmta sér vel allt kvöldið.
 
4) Gestir skipta sér í keppnislið. Hvert lið inniheldur tvo einstaklinga.
 
5) Spyrill spyr salinn 30 spurninga og keppnislið skrifa svör sín við spurningunum á þar til gert blað, jafnóðum og spurt er. Lið mega ekki skiptast á svörum. Gjamm og frammíköll sem innihalda svör eru bönnuð. Einnig er bannað að nota síma, internet eða alfræðirit meðan á keppni stendur.
 
6) Þegar spyrill hefur lokið við að lesa upp spurningarnar fá keppnislið smá tíma til að fara yfir svör sín. Eftir það skiptast lið á svarblöðum og spyrillinn les upp rétt svör við spurningunum. Keppnislið merkja við rétt eða rangt svar á svarblaðinu og telja saman rétt svör áður en liðin skiptast aftur á blöðum. Þá eru öll svarblöð komin til réttra eigenda á ný.
 
7) Því sem næst er farið yfir hvaða lið eru stigahæst. Til að eiga möguleika á bjórkassanum sem er í verðlaun, þarf sigurliðið að vera með minnst 15 svör rétt. Nái ekkert lið 15 réttum svörum bætist kassinn við næstu keppni og verða þá tveir kassar í boði.
 
8) Ef lið eru jöfn fer fram bráðabani, alveg þar til eitt lið stendur uppi sem sigurvegari. Þá er fyrst spurt 5 spurninga og reynt að knýja fram sigurvegara með flestum svörum réttum. Ef ekki fæst sigurlið úr þessum 5 spurningum skal spyrja þriggja spurninga að auki. Ef ekki fást niðurstöður eftir þá lotu eru keppnisliðin bersýnilega jafnsterk og neyðast því til að deila með sér bjórkassanum.
 
9) Í hverri keppni er Bjórspurning. Þau lið sem ná að svara þeirri spurningu rétt eiga þá inni tvo litla bjóra á barnum. Fram kemur eftir keppni hvaða lið eiga inni bjóra.
 
10) Spyrill er alvaldur og dómar hans um vafamál í spurningu eða svari eru óumdeilanlegir. Ekki er hægt að bera upp formlega kvörtun eftir keppni, en svekktum keppendum er bent á að hægt er að drekkja sorgum sínum á barnum.