02/05/2024

Nýr vefur um ferðaþjónustu á Drangsnesi

Valgerður og Ásbjörn á opnunardaginn á BryggjuhátíðinniÞað verður mikið um að vera í kvöld á Malarkaffi, nýjum veitingastað og kaffihúsi á Drangsnesi sem Ásbjörn Magnússon og Valgerður Magnúsdóttir eiga heiðurinn af að koma upp. Þar er matarveisla í kvöld og var því sem næst fullbókað í veisluna síðast þegar fréttaritari forvitnaðist um stöðu mála. Í gær var einnig opnaður nýr vefur fyrir Malarkaffi, Gistiheimilið Malarhorn og Sundhana ST 3 sem meðal annars býður upp á ferðir í Grímsey á Steingrímsfirði. Nýi vefurinn er á slóðinni strandir.saudfjarsetur.is/malarhorn.