26/04/2024

Hamingjuhlaup frá Drangsnesi á Hólmavík

Stefán Gíslason umhverfisfræðingur í Borgarnesi og fyrrum sveitarstjóri á Hólmavík stendur á bak við (eða er kannski frekar hlauparinn á bak við) skemmtilegan viðburð á Hamingjudögum í ár. Stefán hyggst hlaupa frá Drangsnesi til Hólmavíkur á laugardagsmorgni, alls um 34,5 km. Stefán og félagar hans og allir sem vilja slást í hópinn leggja af stað frá bryggjunni á Drangsnesi kl. 10:03 á laugardagsmorgni og verða komnir að Klifstúninu á Hólmavík þegar útiskemmtun þar hefst kl. 13:30. Öllum er velkomið að slást í för með þeim alla leiðina eða hluta af henni, en ætlunin er að hlaupa á jöfnum hraða, um 10 km á klukkustund.

Staðsetning:  Tímasetning  km eftir
 Drangsnes (bryggjan)  10:03 34,5 
 Hveravík 10:42  28 
Vegamót við Bjarnarfjarðarháls   11:36 19,0 
 Selá 11:56  15,6 
 Vegamót í Staðardal 12:19  11,9 
Grjótá  12:41  8,2 
 Ósá 13:01  4,9 
Hólmavíkurvegamót  13:22  1,4 
Hólmavík (Klifstún)  13:30  0,0