23/04/2024

Súpufundur um atvinnu og menningarsýningu á Café Riis

Frá súpufundi í vetur
Þróunarsetrið á Hólmavík í samstarfi við Arnkötlu 2008 mun efna til atvinnu- og menningarsýningar á Ströndum
29. ágúst 2009.  Sýningin verður haldin í Félagsheimilinu á Hólmavík og er
markmiðið tvíþætt:
-Efla tengsl milli ólíkra svæða og athafna á
Ströndum
-Efla ímynd Stranda út á við
Þetta verkefni er framhald súpufundanna sem haldnir voru vikulega í vetur og gerð verður grein fyrir framhaldi verkefnisins. Hólmvíkingar eru hvattir til að mæta á súpufundinn í Café Riis, Hólmavík, á morgun
miðvikudaginn 1. júlí. Súpufundurinn á
Café Riis er þriðji kynningarfundurinn sem fram fer á Ströndum. Fundurinn hefst að venju klukkan 12:00 og stendur til 13:00. Fjórði og
síðasti súpufundurinn verður í Grunnskólanum á Borðeyri , fimmtudaginn 2. júlí
2009.

Tveir vel sóttir fundir hafa verið haldnir í vikunni á Ströndum. Fyrri fundurinn var haldinn hjá Kaffi Norðurfirði og sá seinni hjá Malarkaffi á Drangsnesi og er mikill hugur í fólki á svæðinu til þátttöku í verkefninu.

Vaxtarsamningur Vestfjarða og Menningarráð Vestfjarða eru
styrktaraðilar að sýningunni.  Fyrirtækið AssA, þekking & þjálfun í
Trékyllisvík sér um framkvæmd hennar og er hægt að nálgast frekari upplýsingar
hjá Ingibjörgu Valgeirsdóttur í síma 451 4025 eða senda fyrirspurn og
þátttökuskráningu í netfangið ingibjorg@assaisland.is.