20/04/2024

Viðar Guðmundsson í ársleyfi frá sveitarstjórn Strandabyggðar

Hólmavíkurkirkja vetur

Á fundi sveitarstjórnar Strandabyggðar þann 10. febrúar  var tekið fyrir erindi frá Viðari Guðmundssyni sveitarstjórnarmanni af J-lista þar sem hann óskaði eftir ársleyfi frá störfum í sveitarstjórn Strandabyggðar og fræðslunefnd. Var erindið samþykkt. Ásta Þórisdóttir, fyrsti varamaður af J-lista tekur sæti Viðars í sveitarstjórninni. Með þessum breytingum breytast kynjahlutföll þannig að sveitarstjórn er nú skipuð 3 konum og 2 körlum. Í sveitarstjórn sitja nú auk Ástu, Jón Gísli Jónsson oddviti, Ingibjörg Emilsdóttir, Ingibjörg Benediktsdóttir og Haraldur V.A. Jónsson.