27/04/2024

Námskeið fyrir svæðisleiðsögumenn

Miðvikudaginn 27. janúar kl. 20:00 verður haldinn opinn kynningarfundur á Ísafirði um svæðisleiðsögunám á Vestfjörðum sem fer í gang nú á vormisseri. Þar verður farið yfir fyrirkomulag námsins og eru allir sem áhuga hafa hvattir til að kynna sér námið. Utan norðanverðra Vestfjarða geta áhugasamir tekið þátt í fundinum með hjálp fjarfundabúnaðar á Hólmavík, Reykhólum og Patreksfirði. Námið er haldið af Fræðslumiðstöð Vestfjarða í samvinnu við Leiðsöguskóla Íslands, sem ber faglega ábyrgð á náminu, og Ferðamálasamtök Vestfjarða.

Markmið námsins er að nemendur öðlist almenna þekkingu á leiðsögn og sérþekkingu á Vestfjörðum. Á fyrstu önn koma þátttakendur saman á tveimur helgarlotum, en á annarri og þriðju önn verða þrjár helgarlotur. Námið fer að öðru leyti fram í dreifnámi. Helgarloturnar eru haldnar á mismunandi stöðum á Vestfjörðum.

Allar nánari upplýsingar um svæðisleiðsögunámið er að finna á vef Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða.