26/04/2024

Myndasýning á aðalfundi Félags Árneshreppsbúa

DjúpavíkAðalfundur Félags Árneshreppsbúa verður haldinn sunnudaginn 2. nóvember 2008 og hefst hann kl.14.00. Fundurinn verður haldinn í Bræðraminni, Kiwanishúsinu að Engjateigi 11 í Reykjavík. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Að loknum aðalfundi verða kaffiveitingar og er verð 1500 kr. Þá verður sýnd myndin Af síldinni öll erum orðin rík, en hún fjallar um Djúpavík og Ingólfsfjörð og kemur þar við sögu mikið af  íbúum Árneshrepps. Myndin er rúmlega 20 ára gömul. Hún verður jafnframt til sölu á aðalfundinum ásamt Gamla brýninu heimildamynd um hlunnindabúskap í Ófeigsfirði
 

Auk þess verða tvær aðrar myndir til sölu: Perlan í Djúpinu, menn og dýr í eyjunni Vigur í Ísafjarðardjúpi og Á hala veraldar, Hornstrandir og Jökulfirðir í nútíð og fortíð. Sértilboð verður á þessum myndum fyrir gesti – 1.500 kr. Þá verður frumsýndur fyrsti fáninn sem gerður er með merki ungmennafélagsins Leifs heppna.