26/04/2024

Morgunblaðið fjallar um Café Riis

Í Morgunblaðinu í dag er birt frétt um veitingastaðinn Café Riis á Hólmavík undir fyrirsögninnni Óvissa um veitingaaðstöðu, en það er frétt sem var unnin hjá blaðinu síðastliðinn sunnudag. Síðan þá virðist hafa þokast í átt með sölu á staðnum, þó engin staðfest tíðindi hafi borist strandir.saudfjarsetur.is, en fréttavefurinn hefur það að stefnu að hirða ekki upp munnmæli af strætum og spjalltorgum af málinu og bíður því frekari tíðinda. Þar til það birtir upp í tíðindum af Café Riis þá geta gestir vefjarins lesið það sem blaðamaður Morgunblaðsins hafði upp úr sinni fréttaöflun, þó þar komi lítið nýtt fram. 


"Ferðaþjónustan á Ströndum er uggandi yfir veitingastaðnum Cafe Riis en tvísýnt er hvort staðurinn opnar fyrir sumarið. Sigurður Atlason, framkvæmdastjóri Galdrasýningar á Ströndum, segir að eigendur staðarins hafi selt hann og að nýi eigandinn ætli sér ekki að reka staðinn. Eigandinn hefur ekki fundið neinn til að annast reksturinn en að sögn Sigurðar er enginn annar matsölustaður á Hólmavík ef frá er talinn söluskáli Esso.

Sigurður hefur áhyggjur af því að ferðaþjónustan bíði hnekki og að það taki langan tíma að vinna aftur upp ímyndina sem Hólmavík hefur skapað sér. "Hólmavík er að verða ferðmannastaður. Cafe Riis fellur inni í ímyndina sem við höfum verið að búa til undanfarin ár," segir Sigurður og bendir á að innréttingarnar á veitingastaðnum eru skreyttar galdrastöfum.

Eðvarð Björgvinsson er eigandi Fjarðarkletts sem nú á Cafe Riis en hann segist hafa eignast staðinn í tengslum við önnur viðskipti og að aldrei hafi annað staðið til en að selja hann. "Ég bíð bara eftir að Strandamenn taki ákvörðun um að kaupa þetta. Margir eru að spá en ekkert gerist," segir Eðvarð en reksturinn hefur gengið vel.

Haraldur V. Jónsson, oddviti Hólmavíkurhrepps, segir að hreppsnefnd hafi ekki tekið afstöðu en nú hljóti menn að þurfa að ákveða hvernig málum verður háttað í sumar. "Ef það fer ekki að gerast skoðum við eflaust málið," segir Haraldur."