
Kvenfélagskonur í Kvenfélaginu Iðunni í Bæjarhreppi ætla líka að bjóða körlunum sínum út að borða á laugardaginn og svo á leiksýninguna Híbýli vindanna í Borgarleikhúsinu að loknum kvöldverði. Þannig að um komandi helgi hverfur stór hluti Bæhreppinga á vit æfintýra í menningarborginni Reykjavík.
Sama dag fjölmenna unglingar frá Félagsmiðstöðinni Ozon á söngvakeppni Samfés í Reykjavík. Þar keppa atriði frá Ströndum í úrslitum bæði í söngvakeppninni og Singstar Playstation 2 keppni. Einnig er árshátíð Félags Árneshreppsbúa syðra á laugardaginn. Á sunnudaginn verða síðan undanúrslit í Spurningakeppni Strandamanna á Hólmavík þar sem átta lið leiða saman hesta sína.