27/04/2024

Kjör á Strandamanni ársins stendur sem hæst

300-gudbrandur-perlanSeinni umferðin í kjöri á Strandamanni ársins 2007 stendur nú sem hæst og er kosningin bæði jöfn og spennandi. Þeir sem til greina koma og kosið er á milli að þessu sinni eru Ásbjörn Magnússon og Valgerður Magnúsdóttir á Drangsnesi, Guðjón Þórólfsson á Hólmavík, Kristín S. Einarsdóttir á Hólmavík og Sigurður Atlason á Hólmavík. Hægt er að skila inn atkvæðum hér á vefnum til miðnættis næstkomandi þriðjudag. Hver einstaklingur má aðeins kjósa einu sinni. Hér að neðan er umfjöllun um þá sem keppa til úrslita:

Ásbjörn Magnússon og Valgerður Magnúsdóttir á Drangsnesi hafa staðið í ströngu við uppbyggingu ferðaþjónustu á árinu 2007. Nýtt gistihús á Drangsnesi var opnað um vorið og kaffihúsið Malarkaffi var svo fyrst opnað á Bryggjuhátíðinni. Þá hefur lendingaraðstaða í Grímsey verið lagfærð mikið og Ásbjörn sér um reglubundnar siglingar þangað á Sundhana. Í umsögnum þeirra sem tilnefndu Ásbjörn og Valgerði kemur t.d. fram að þau „láti verkin tala“, að framkvæmdasemi þeirra „bæti þjónustu á svæðinu, styrki atvinnu og bæti ímynd Drangsnesinga“, að þau sýni „dugnað og þor“ og „hafi trú á framtíð staðarins“.

Guðjón Þórólfsson á Hólmavík er nýorðinn 15 ára og hefur náð afbragðs góðum árangri á íþróttasviðinu. Guðjón hefur náð sérstaklega góðum árangri í hástökki og er jafnframt mjög fær í öðrum íþróttagreinum, bæði hópíþróttum og einstaklingsíþróttum. Hann var valinn Íþróttamaður Strandabyggðar í ársbyrjun 2008. Í umsögnum um Guðjón segir að hann sé tilnefndur „vegna íþróttaafreka á árinu, vann Íslandsmót og Meistaramót í frjálsum og afrekaði fullt af öðru bæði í fótbolta og körfu“ og einnig að hann sýni „dugnað og þolinmæði gagnvart yngri görpum á íþróttasviðinu“ og að hann sé „góð fyrirmynd fyrir aðra“.

Kristín S. Einarsdóttir á Hólmavík er kennari og vinnur einnig sjálfstætt, m.a. sem fréttaritari og útvarpsmaður og einnig að fullorðinsfræðslu og prentverkefnum. Á árinu 2007 hóf hún útgáfu á dagskrár- og fréttablaðinu Gagnvegi sem dreift er um alla Strandasýslu. Í umsögnum þeirra sem tilnefndu Kristínu segir að hún hafi unnið „frábær störf á liðnu ári“ og að það sé „lofsvert framtak að gefa vikulega út blað sem er í senn skemmtilegt, fróðlegt og handbók fyrir lesendur“. Eins segja þeir sem hana tilnefna að Kristín hafi sýnt dugnað við „fréttaflutning og að koma Ströndum á kortið“, hún sé „dugleg og bóngóð“, „jákvæð, lífsglöð og skemmtileg manneskja“ og „að það ættu öll sveitarfélög að eiga eina Stínu“.

Sigurður Atlason á Hólmavík er framkvæmdastjóri Strandagaldurs sem á síðasta ári fékk Eyrarrósina sem framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni. Hann átti auk þess frumkvæði að og kom á laggirnar klasasamstarfi ferðaþjóna undir merkjum Arnkötlu 2008 og náði að fjármagna það verkefni, rétt eins og vinnustaðinn Þjóðtrúarstofu. Um Sigurð segir í tilnefningum að hann hafi „komið Ströndum á kortið“, „unnið óeigingjarnt starf í menningarmálum“ og að hann hafi „staðið sig afbragðs vel í því að kynna Strandir og unnið vel að málefnum sem eru til bóta fyrir samfélagið“. Einnig að hann hafi unnið „frábært starf í Arnkötlu 2008“ og „verið virkur í félagslífinu og leiklistinni“.

Þrír einstaklingar hafa verið kosnir Strandamenn ársins fram til þessa. Árið 2004 var það Sverrir Guðbrandsson eldri á Hólmavík, árið 2005 Guðbrandur Einarsson á Broddanesi og árið 2006 Sandra Dögg Guðmundsdóttir á Drangsnesi.