27/04/2024

Göngudagur fjölskyldunnar á Drangsnesi og Hólmavík á fimmtudag


Á morgun, fimmtudaginn 30. ágúst, fer fram Göngudagur fjölskyldunnar á Drangsnesi og Hólmavík. Dagurinn er skipulagður af ungmennafélögum á svæðinu og er hugsaður sem tækifæri fyrir alla fjölskylduna til að stunda útivist og hreyfingu í hinni fallegu náttúru Stranda. Allir eru hvattir til að taka þátt í þessum skemmtilega degi. Á Drangsnesi er mæting kl. 17:00 á tjaldsvæðið á Drangsnesi. Gengið verður á Bæjarfell. Að sjálfsögðu er síðan tilvalið að smella sér í heitu pottana eftir gönguna. Umf. Neisti og Skíðafélag Strandamanna standa fyrir göngunni á Drangsnesi.

Á Hólmavík er mæting við Íþróttamiðstöðina. Gengið verður að Stóru-Grund, annað hvort um Borgirnar eða í gegnum bæinn. Við göngulok verður boðið upp á pylsur og Svala. Umf. Geisli stendur fyrir göngunni á Hólmavík. Allir eru hjartanlega velkomnir, Strandamenn og gestir.