27/04/2024

Samkeppni um Hamingjulagið 2011

Á vef Strandabyggðar – www.strandabyggd.is – kemur fram að ákveðið hefur verið að efna til lagasamkeppni vegna Hamingjudaga á Hólmavík 2011. Menn hafa góðan tíma fyrir lagasmíðarnar, því frestur til að skila lagi í keppnina er til föstudagsins 29. apríl. Þegar hefur verið ákveðið að keppni þar sem sigurlagið er valið af áhorfendum verði haldin á Hólmavík sunnudagskvöldið 8. maí kl. 20:00. Lagið má ekki hafa heyrst opinberlega áður og ekki er verra að textinn fjalli að einhverju leyti um hamingjuna, Hólmavík eða Hamingjudaga. Það er þó alls ekki skilyrði.

Sú breyting verður gerð að þessu sinni að Tómstunda-, íþrótta- og
menningarnefnd Strandabyggðar mun sjá um að skipuleggja og kosta
stúdíóupptöku og útgáfu á sigurlaginu. Allar reglur varðandi keppnina má nálgast með því að smella hér.

Skila þarf lögum á geisladisk til Menningarmálanefndar í síðasta lagi
föstudaginn 29. apríl, merkt Hamingjudagar á Hólmavík – Lagasamkeppni
2011, Höfðagata 3, 510 Hólmavík. Úrslitakeppnin fer svo fram í
félagsheimilinu á Hólmavík.

Allar nánari upplýsingar má nálgast hjá framkvæmdastjóra
hátíðarinnar, Arnari Snæberg Jónssyni, í netfanginu
tomstundafulltrui@strandabyggd.is eða í síma 894-1941.