28/03/2024

Lokasýning á Halta-Billa framundan

Nú er komið að því að Leikfélag Hólmavíkur Hólmavíkur sýnir leikritið Halta-Billa í síðasta skipti, en stykkið var aðalverkefni félagsins í vetur. Lokasýningin verður á Akranesi í tengslum við bæjarhátíðina Írska daga, nánar tiltekið í Gamla Kaupfélaginu og hefst kl. 21 þriðjudaginn 3. júlí. Hægt er að kaupa miða við innganginn og á midi.is. Að baki eru fjórar sýningar á Hólmavík, auk þess sem sýnt var á Þingeyri, Patreksfirði, Búðardal og Árneshreppi.

Farið var í leikferð í Búðardal og Trékyllisvík um síðustu helgi og gekk bærilega, góð aðsókn og viðtökur. Alls hafa um 400 manns séð leikritið. Leikfélag Hólmavíkur er eitt af fáum leikfélögum sem heldur enn í þá hefð að fara í leikferðir með stykkin sem sett eru upp, sennilega er það í og með vegna þess að ekki þarf sérlega margar sýningar til að metta markaðinn á Hólmavík.

Leikritið Halti Billi er eftir Martin McDonaugh sem er margverðlaunaður handritshöfundur og leikstjóri, maðurinn á bak við kvikmyndirnar In Bruges, Seven Phychopaths og Three Billboards Outside Ebbing, Missouri. McDonagh hefur hlotið ein Óskarsverðlaun og fjórar tilnefningar, Golden Globe verðlaun og fjölda BAFTA verðlauna.

McDonagh er þekktur fyrir að skafa ekki utan af hlutunum. Hann tekst á við erfið og átakanleg málefni í verkum sínum og notar til þess sterkar persónur sem oft hafa óviðeigandi skoðanir, ljótan talanda og tilhneigingu til að beita ofbeldi. Allt þetta gerir hann með því að beita húmor af einstakri lagni. Halti Billi er eitt af hans fyrstu verkum og glímir leikfélagið við uppsetninguna undir leikstjórn Skúla Gautasonar leikstjóra.

Leikritið Halti Billi gerist á Írlandi, eins og flest verka McDonagh. Sagan á sér stað í Inishman á Araneyjum árið 1934, einmitt þegar tökulið frá Hollywood er við störf á nærliggjandi eyju við tökur á myndinni Maðurinn frá Aran-eyjum. Viðburðurinn hefur mikil áhrif á smábæjarlífið og sumir sjá möguleika á að flýja fátækt, slúður og almenn leiðindi. Billi er þar engin undantekning en þó er hann bæði munaðarlaus og fatlaður og því ekki beint það sem Hollywood leitar að, eða hvað? Sýningin er ekki við hæfi ungra barna.

Myndin hér að ofan er tekin fyrir sýninguna í Árneshreppi af leikhópnum og hluta af þeim sem starfa bak við tjöldin.