30/04/2024

Gott kvöld frumsýnt í kvöld

Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir í kvöld 29. desember leikritið Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur. Um er að ræða barnaleikrit með söngvum fyrir fólk á öllum aldri. Leikstjóri er Kristín Sigurrós Einarsdóttir. Önnur sýning verður 30. desember, þriðja sýning 4. janúar og fjórða sýning 6. janúar og hefjast þær allar kl. 20:00. Leikritið er sýnt í félagsheimilinu á Hólmavík. Sagan segir frá strák sem er aleinn heima með bangsa sér til halds og trausts þegar pabbinn skreppur í burtu. Allskyns kynjaverur kíkja í heimsókn og það verður líf og fjör. Leikritið tekur þrjú korter í flutningi. Miðapantanir eru í síma 847-4415.