27/04/2024

Fréttir af verkefnum lögreglu

Föstudaginn 4. mars fann lögreglan á Vestfjörðum tæp 70 grömm af kannabisefnum. Efnið fannst við húsleit sem lögreglan framkvæmdi í húsi einu á Ísafirði. Ungur maður var handtekinn í þágu rannsóknar málsins. Hann hefur viðurkennt að hafa átt efnið og ætlað það til dreifingar á svæðinu. Manninum var sleppt að yfirheyrslum loknum í gærkveldi, enda telst málið upplýst. Maðurinn hefur áður komið við sögu lögreglunnar vegna fíkniefnamála. Fíkniefnaleitarhundurinn á Vestfjörðum, Dollar, var notaður við fíkniefnaleitina.

Lögreglan hvetur alla þá sem búa yfir upplýsingum eða grunsemdum um fíkniefnameðhöndlun um að koma þeim á framfæri. Það er hægt að gera í síma 450 3730 (upplýsingasími lögreglunnar á Vestfjörðum) eða í síma 800 5005 (talhólf lögreglu og tollgæslu á landsvísu varðandi fíkniefnaupplýsingar). Fullrar nafnleyndar er heitið.

Umferð í umdæminu var með rólegra móti í liðinni viku, þó voru tveir ökumenn stöðvaðir fyrir of harðan akstur, annar á Skutulsfjarðarbraut á Ísafirði, en hinn á Vestfjarðarvegi í Önundarfirði. Fjögur umferðaróhöpp voru  tilkynnt til lögreglu í vikunni, þrjú á Ísafirði. Tvö minniháttar óhöpp og eitt með þeim hætti að bifreið hafnaði á húsi, hafði runnið aftur á bak. Í þessum tilfellum var ekki um mikið eignartjón að ræða og ekki slys á fólki.

Þriðjudaginn 1. mars hafnaði pallbíll út af veginum um Raknadalshlíð. Bifreiðin hafnaði upp fyrir veg og valt eina veltu. Ökumaður var fluttur með sjúkrabíl á Heilsugæslustöðina á Patreksfirði til skoðunar. Bifreiðin var óökuhæf og flutt af vettvangi með kranabíl. Aðstæður á vettvangi er þannig þar sem óhappið átti sér stað að, mjög bratt er niður hlíðina og ef bifreiðin hafði farið fram af, hefði getað orðið mjög alvarlegt slys. Hálka var á veginum.

Skemmtanahald í umdæminu um liðna helgi fór vel fram og án teljandi afskipta lögreglu.