27/04/2024

Öskudagsball fyrir börnin á Hólmavík

Öskudagur 2007Foreldrafélag Grunnskólans á Hólmavík heldur upp á gamlar hefðir og býður öllum börnum í Strandabyggð og nágrannasveitum að taka þátt í Öskudagsballi fyrir börnin miðvikudaginn 9. mars, klukkan 17:00 í Félagsheimilinu á Hólmavík. Húsið fyllist af kátum krökkum, héðan og þaðan, og ef að líkum lætur skemmta allir sér konunglega. Foreldrar er hvattir til að koma með krakkana sína og fara í þrautakóng og slá köttinn úr tunnunni. Verðlaun verða veitt fyrir frumlegasta furðufatabúninginn.