19/04/2024

Framboðslisti Frjálslyndra kynntur

FrjálslyndirBúið er að ganga frá framboðslista Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar sem verða í vor, þann 12. maí. Guðjón Arnar Kristjánsson formaður flokksins er í fyrsta sæti og í öðru sæti er Kristinn H. Gunnarsson þingmaður sem nýverið gekk í flokkinn, eins og áður var tilkynnt. Flokkurinn fékk tvo menn í kjördæminu í síðustu kosningum.

Framboðslistinn er eftirfarandi:

1. Guðjón Arnar Kristjánsson, alþingismaður og formaður Frjálslynda flokksins, Ísafirði.
2. Kristinn H. Gunnarsson, alþingismaður, Bolungarvík.
3. Þórunn Kolbeins Matthíasdóttir, menntunarfræðingur og ráðgjafi, Akranesi.
4. Ragnheiður Ólafsdóttir, öryrki og listamaður, Akranesi.
5. Anna Margrét Guðbrandsdóttir, heilbrigðis- og aðhlynningarstarfsmaður við Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki, Sauðárkróki.
6. Guðmundur Björn Hagalínsson, bóndi og formaður eldri borgara í Önundarfirði, Flateyri.
7. Brynja Úlfarsdóttir, stuðningsfulltrúi, Ólafsvík.
8. Helgi Helgason, bóndi, Borgarfirði.
9. Gunnlaugur Guðmundsson, bóndi, Söndum í Miðfirði, Húnaþingi vestra.
10. Lýður Árnason, heilbrigðisstarfsmaður, Bolungarvík.
11. Hanna Þrúður Þórðardóttir, heimavinnandi húsmóðir, Sauðárkróki.
12. Páll Jens Reynisson, véla- og iðnaðarverkfræðinemi við HÍ, Hafnardal í Strandabyggð.
13. Sæmundur T. Halldórsson, verkamaður, Akranesi.
14. Dóróthea Guðrún Sigvaldadóttir, verslunarrekandi, Dalabyggð.
15. Þorsteinn Árnason, vélaverkfræðingur, Andakílsárvirkjun í Borgarfirði.
16. Þorsteinn Sigurjónsson, bóndi, Reykjum í Hrútafirði.
17. Rannveig Bjarnadóttir, stuðningsfulltrúi, Akranesi.
18. Pétur Bjarnason, framkvæmdastjóri og varaþingmaður.

Fjórir efstu menn á framboðslista Frjálslynda flokksins í kjördæminu