19/04/2024

Veðrið í Árneshreppi í ágúst

Borist hefur yfirlit frá veðurstöðinni í Litlu-Ávík um veðrið í ágúst. Mánuðurinn var hægviðrasamur, þokusúld fyrstu dagana og síðan í seinni hluta mánaðar gekk í rigningar eða súld. Berjaspretta virðist allgóð. Úrkoman mældist 72,3 mm í ágúst, og er það nálægt meðaltali. Mestur hiti í mánuðinum var 15,1 stig þann 6. ágúst og 15,5 stig þann 27. Minnstur hiti mældist 1,6 stig þann 16. Sjóveður var gott í mánuðinum, nema dálítill  eða talsverður sjór dagana 1.-6. ágúst og 14.-15.

1.-4.: Norðan og austnorðaustan, stiningsgola eða stinningskaldi, rigning eða súld, hiti 5 til 9 stig.
5.-6.: Suðlægur, kaldi, síðan gola, úrkomulaust, hiti 7 til 15 stig.
7.-8.: Breytilegar vindáttir, andvari eða kul, lítilsháttar rigning, hiti 7 til 14 stig.
9.-15.: Norðan og norðvestan, kul eða gola en kaldi 14. og 15., rigning þann 9. annars súld með köflum, hiti frá 11 stigum niðrí 5 stig.
16.-18.: Norðlægur eða breytilegar vindáttir, andvari eða kul, úrkomulaust, hiti 2 til 11 stig.
19.-20.: Norðlæg vindátt, gola, þurrt í veðri, hiti 5 til 10 stig.
21.-24.: Suðvestan eða suðlæg vindátt, stinningsgola upp í kalda, rigning síðan skúrir, hiti 8 til 14 stig.
25.-30.: Norðvestan eða breytilegar vindáttir, kul eða gola, rigning eða súld, hiti 5 til 15 stig.
31.: Suðlæg vindátt, gola, rigning, hiti 8 til 11 stig.

Tekið saman af Jóni G Guðjónssyni veðurathugunarmanni.