25/04/2024

Aðalfundur Ferðamálasamtaka Vestfjarða á Drangsnesi

Aðalfundur Ferðamálasamtaka Vestfjarða verður haldinn á Drangsnesi á Ströndum dagana 17.-19. apríl nk. Í tengslum við aðalfundinn verður haldið málþing þar sem fjallað verður um börn og ferðalög. Einnig verður kynning á helstu nýjungum í ferðaþjónustu á Ströndum og farið verður í skemmti- og skoðunarferð um nágrenni Drangsness. Aðalfundurinn og málþingið er öllum opið og það eru allir sem hafa áhuga á uppbyggingu ferðaþjónustu á Vestfjörðum hvattir til að mæta og taka þátt í dagskránni um þessa skemmtilegu helgi sem er framundan hjá Ferðamálasamtökunum.

Ferðamálasamtök Vestfjarða eru samtök hagsmunaaðila í ferðaþjónustu á Vestfjörðum. Félagar í samtökunum geta verið sveitarfélög á Vestfjörðum, einstaklingar, fyrirtæki eða félög sem skilgreina sig í ferðaþjónustu. Eitt atkvæði í samtökunum tilheyrir hverjum félaga á aðalfundi. Fullgildur félagi telst sá er sótt hefur um aðild til stjórnar og hún samþykkt og fært á félagaskrá. Þá þarf árgjald yfirstandandi árs að vera greitt.

Hægt er að ganga í Ferðamálasamtök Vestfjarða með því að smella hér en eingöngu fullgildir félagsmenn hafa atkvæðisrétt á aðalfundi.

Allar nánari upplýsingar fást hjá Sigurði Atlasyni í síma 897 6525 eða netfangi arnkatla2008@strandir.saudfjarsetur.is. Endanleg dagskrá fundarins og viðburðum honum tengdum verður birt fljótlega eftir næstu helgi.