26/04/2024

Eldað úti við opinn eld á Hólmavík

Eldað úti við opinn eld við Grunnskólann á HólmavíkÍ fréttatilkynningu frá Fræðslumiðstöð Vestfjarða kemur fram að Vika símenntunar verður haldin í níunda sinn 22.-28. september 2008. Markmið viku símenntunar er að auka símenntun í atvinnulífinu og hvetja fólk til að leita sér þekkingar alla ævi. Að þessu sinni verður lögð áhersla á fræðslu í fyrirtækjum og sem fyrr að ná til þeirra sem hafa litla formlega menntun. Í tilkynningunni segir að ætlunin sé að heimsækja fyrirtæki og stofnanir á Vestfjörðum og kynna starfsemi Fræðsluskrifstofu Vestfjarða. Fyrirtæki og stofnanir á Hólmavík og Drangsnesi verða heimsótt 25. september og einnig haldið námskeið í að elda úti við opinn eld.

Miðvikudaginn 24. september verða fyrirtæki og stofnanir á Reykhólum heimsótt frá 13.00-17.00. Um kvöldið frá 20.00-22.00 verður síðan kynning í Reykhólaskóla og námskeiðið Útieldun við opinn eld haldið, þátttakendum að kostnaðarlausu.

Fimmtudaginn 25. september verða fyrirtæki og stofnanir á Drangsnesi heimsótt frá 10.00-12.00 og frá 13.30-17.00 verða fyrirtæki og stofnanir á Hólmavík heimsótt. Frá 20.00-22.00 verður kynning við Galdrasýningu og námskeiðið Útieldun við opinn eld haldið, þátttakendum að kostnaðarlausu. Á báðum stöðum verður boðið upp á létt skemmtiatriði á kynningarfundunum.

Miðvikudagurinn 24. september er árlegur símenntunardagur í fyrirtækjum og stofnunum. Fyrirtæki eru hvött til að tileinka þann dag fræðslumálum, t.d. med því að kynna starfsmönnum fræðslustefnu fyrirtækisins, bjóða upp á námskeið eða fá kynningar frá fræðsluaðilum, stéttarfélögum eða styrktarsjóðum.

Menntamálaráðuneytið stendur fyrir viku símenntunar en framkvæmd verkefnisins er í nánu samstarfi við símenntunarstöðvarnar níu á landsbyggðinni og Mími-símenntun og Framvegis á höfuðborgarsvæðinu. Vika símenntunar er stórt og árvisst verkefni þar sem fjölmargir hagsmunaaðilar eru kallaðir til samstarfs um að vekja athygli á mikilvægi símenntunar og hvetja fólk til að leita sér þekkingar.