04/05/2024

Arinbjörn Bernharðsson er Strandamaður ársins 2010

Allan janúarmánuð hafa Strandamenn keppst við að hugsa um það sem vel var gert í samfélaginu á síðasta ári í tengslum við kjör á Strandamanni ársins 2010. Nú liggur niðurstaðan í þeirri kosningu fyrir og stóð Arinbjörn Bernharðsson frá Norðurfirði uppi með heiðurinn og er réttnefndur Strandamaður ársins. Arinbjörn stóð fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu í Árneshreppi á árinu 2010 og reisti í sumar tvö sumarhús í Norðurfirði á vegum fyrirtækisins Urðartinds ehf. en upplýsingar um fyrirtækið má finna á Facebook.

Í umsögnum þeirra sem tilnefndu Arinbjörn sem Strandamann ársins kom skýrt fram að ferðaþjónustan í Norðurfirði hefur "slegið í gegn" og Arinbjörn hyggur á frekari uppbyggingu. Þá hefur hann unnið að atvinnuuppbyggingu við útgerð á Drangsnesi. Arinbjörn er í umsögnum sagður "efnilegasti ferðaþjónustubóndi ársins", "snillingur" sem "sýnir í verki hvar hjarta hans slær" og hefur "fjárfest manna mest á Ströndum". Hann er sagður "flottur karl" og "feikna öflugur trésmiður" sem "vandar vel til verka" og hefur "lagt mikið á sig til að auka ferðamannastraum á Strandir".

Þeir sem áður hafa verið valdir eru Sverrir Guðbrandsson eldri á Hólmavík árið 2004, Guðbrandur Einarsson frá Broddanesi var Strandamaður ársins 2005, Sandra Dögg Guðmundsdóttir á Drangsnesi var kjörin árið 2006, hjónin Ásbjörn Magnússon og Valgerður Magnúsdóttir á Drangsnesi unnu kosninguna árið 2007, Strandamaður ársins 2008 var Ingibjörg Sigvaldadóttir frá Svanshóli og árið 2009 sigraði Sigurður Atlason á Hólmavík í kosningunni.