20/04/2024

Veðrið í Árneshreppi í nóvember 2008

Gjögur - ljósm. Jón G.G.Að venju birtum við hér mánaðarlegt yfirlit yfir veðrið, en veðurlýsingarnar skrifar Jón G. Guðjónsson veðurathugunarmaður hjá veðurstöðinni í Litlu-Ávík. Nóvember var mjög umhleypingasamur eins og fyrri mánuður á undan, en sæmilega hlýtt fystu 9 daga mánaðar. Síðan var yfirleitt frost nema 16.-19. en þá var einnig hlýtt. Vindur náði 12 vindstigum eða 34 m/s að morgni þess 5. og mikil ísing var fimmtudaginn 13. nóvember. Sauðfé var almennt komið á gjöf upp úr 20. nóvember.

1.: Suðvestan allhvass í fyrstu, síðan kaldi, þurrt, hiti 1 til 5 stig.
2.: Breytileg vindátt, hægviðri, gola, rigning, hiti 3 til 5 stig.
3.-5.: Suðlægar vindáttir, allhvass þann 3. og hvassviðri fram á hádegi þann 5., annars kaldi, rigning, skúrir eða slydduél, hiti 2 til 10 stig.
6.-8.: Breytileg vindátt, kul, andvari eða logn, þurrt þann 6., annars smá rigning, hiti 2 til 6 stig.
9.-11.: Norðaustan og norðan allhvass þann 9., annars stinníngskaldi eða kaldi, súld þann 9., síðan snjókoma eða él, hiti frá 6 stigum niðrí 2 stiga frost.
12.: Suðlæg vindátt, gola, úrkomulaust, frost 1 til 5 stig.
13.: NA kaldi eða stinníngskaldi, él, síðan frostrigning, hiti frá 2 stigum niðrí 2 stiga frost.
14.: Breytileg vindátt, kul eða gola, úrkomulaust, hitastig um frostmark.
15.: SV stinníngskaldi um morguninn, síðan NV og N hvassviðri um tíma frameftir degi, vestan gola um kvöldið, snjóél, hiti frá 2 stigum niðrí 5 stiga frost.
16.: SV allhvass, síðan rok um kvöldið og stormur fram á nótt, rigning, hiti 1 til 6 stig.
17.: Mest NV kaldi, síðan gola, él, frostúði, snjókoma, hiti frá 5 stigum niðrí 2 stiga frost.
18.: Breytileg vindátt í fyrstu, síðan SV allhvass, snjókoma um morguninn, hlýnar í veðri, hiti frá 1 stigi uppí 8 stig.
19.: Vestan stinníngskaldi, síðan NA kaldi, snjóél, hiti frá 5 stigum niðrí 0 stig, kólnar.
20.-21.: Vestan kaldi síðan gola, snjókoma um morguninn þann 20., frost 2 til 6 stig.
22.-23.: Austan gola í fyrstu með smá snjókomu, síðan SV kaldi og NV allhvass með éljum, hiti frá 6 stigum niðrí 3 stiga frost.
24.-25.: Suðlæg vindátt, gola, stinníngsgola, síðan vestlægur, hvassviðri um tíma þann 25., síðan gola um kvöldið, smá skúrir, hiti frá 7 stigum niðrí 2 stiga frost.
26.: Vestan kul um morguninn, síðan NA stinníngskaldi, snjókoma fram undir hádegið og norðan allhvass um kvöldið með snjókomu, frost 3 til 5 stig.
27.-29.: Norðan stormur í fyrstu síðan, allhvass eða stinníngskaldi, snjókoma, síðan él, frost 0 til 9 stig.
30.: Vestan gola í fyrstu, síðan SV stinníngskaldi og NV kaldi um kvöldið með snjókomu, frost 1 til 9 stig.

Úrkoman mældist: 62,5 mm (í nóvember 2007:78,5 mm).
Úrkomulausir dagar voru 3.
Mestur hiti var þann 5.: +10,5 stig.
Mest frost var þann 30.: -8.8 stig.
Jörð alhvít í 15 daga.
Jörð flekkótt í 2 daga.
Auð jörð því í 13 daga.
Mesta snjódýpt mældist dagana 29. og 30. þá: 12 cm.
Meðalhiti við jörð var: -1,89 stig (í nóvember 2007: -1,56 stig.)
Sjóveður: Mjög rysjótt í mánuðinum.

Tekið saman af Jóni G. Guðjónssyni veðurathugunarmanni í Litlu-Ávík.