05/05/2024

Nýjar fréttir af Fjalla-Eyvindi á Ströndum

Fyrir skömmu komu í leitirnar á Þjóðskjalasafni áður ókunn skjöl um veru Eyvindar og Höllu í Drangavíkurfjalli á Ströndum, barnsfæðingu þar og handtöku vorið 1763. Einnig réttarhöld yfir þeim í Árnesi í Trékyllisvík og á Hrófbergi við Steingrímsfjörð sama vor og dómur sem upp var kveðinn á Broddanesi í Kollafirði 30. maí sama ár. Á laugardaginn næsta, 5. febúar 2011 kl. 16:00, flytur Kjartan Ólafsson, fyrrverandi alþingismaður og ritstjóri, fyrirlestur í Skelinni – lista- og fræðimannadvöl Þjóðfræðistofu á Hólmavík – um þessa merku uppgötvun undir titlinum Nýjar fréttir af Fjalla-Eyvindi á Ströndum. Heitt verður á könnunni og allir velkomnir.

Meðfylgjandi mynd tók Vignir Örn Pálsson í Drangavík á Ströndum.