27/04/2024

Allir á félagsvist

fÍ kvöld, föstudagskvöldið 13. febrúar kl. 20:00, verður spiluð félagsvist í Félagsheimilinu á Hólmavík. Það er Sauðfjársetur á Ströndum sem stendur fyrir spilakvöldinu sem er annað kvöldið í þriggja kvölda keppni. Allir eru hjartanlega velkomnir, en aðgangseyrir er kr. 500.- fyrir hvern spilakappa. Að sjálfsögðu eru vegleg verðlaun í boði fyrir þá sem standa sig best og þeir sem standa sig verst fá örlítið síðri verðlaun. Þá fær stigahæsti einstaklingurinn eftir kvöldin þrjú vegleg verðlaun. Fín mæting var á fyrsta keppniskvöldið og aðstandendur vonast til að sjá enn fleiri í kvöld. Sjoppa verður á staðnum og heitt á könnunni, en síðasta keppniskvöldið verður síðan föstudaginn 20. febrúar.