29/03/2024

Aðalfundur foreldrafélags

Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans á Hólmavík verður haldinn í skólanum þriðjudaginn 1. febrúar næstkomandi, kl. 18:00. Allir foreldrar eru þar hjartanlega velkomnir, en meðal þess sem fram fer á fundinum er kosning tveggja nýrra stjórnarmanna.

Foreldrafélagið hefur undanfarin ár styrkt skólastarfið á margvíslegan hátt og staðið fyrir ýmis konar fjáröflun í þágu þess.