28/04/2024

Vorfagnaður á Borðeyri

640-bordeyri1
Þorrablót ungmennafélagsins Hörpu og kvenfélagsins Iðunnar í Hrútafirði verður að vorfagnaði og verður hann haldinn laugardaginn 13. apríl 2013 í skólahúsinu á Borðeyri. Húsið opnar kl. 20, en viðburðurinn hefst kl. 20:30. Ljúffengur veislumatur verður á borðum og hljómsveitin Kopar leikur fyrir dansi. Hinn snjalli Einar Georg flytur annál ársins og ýmsir stíga á stokk með söng og glens. Pantanir eru í símum 451-0090 (Kristín G.) og 451-1104 (Kristín) fyrir 11. apríl. Miðaverð kr. 6.500.- en kr. 3.000.- eingöngu á ballið. Posi verður á staðnum.