26/04/2024

Háskóli unga fólksins á Ísafirði

Dagana 11.-15. júní 2007 býður Háskólasetur Vestfjarða upp á háskólanám fyrir ungt fólk. Unglingum fæddum á árunum 1991-1995 býðst þá að sækja fjölda stuttra námskeiða þar sem kennarar á háskólastigi fjalla um heima og geima. Skipt verður í aldurshópa og getur hver nemandi tekið allt að sex námskeið, svo að eitthvað nýtt og skemmtilegt er á stundatöflunni á hverjum degi. Í lok síðasta skóladagsins, föstudagsins 15. júní, verður haldin brautskráningarhátíð þar sem afrakstur skólastarfsins verður kynntur og brautskráningarskjal afhent.

Hver nemandi velur allt að sex námskeið.  Verð fyrir sex námskeið er kr. 8000.  Einnig er hægt að taka stök námskeið og þá er verð fyrir hvert námskeið kr. 1500. Skráning fer fram á heimasíðu Háskólaseturs Vestfjarða, www.hsvest.is en þar er einnig að finna allar upplýsingar um þau námskeið sem í boði eru. Umsóknarfrestur í Háskóla unga fólksins er til mánudagsins 4. júní þannig að nú eru síðustu forvöð til að skrá þátttöku.