26/04/2024

Tjaldið á Hólmavík í vikunni


Leikritið Tjaldið eftir Hallgrím Helgason verður sýnt í Félagsheimilinu á Hólmavík þriðjudaginn 9. apríl og miðvikudaginn 10. apríl kl. 20:00 báða dagana. Hópur ungmenna í leiklistarvali við Grunnskólann á Hólmavík leikur í verkinu undir stjórn Arnars S. Jónssonar, en uppsetningin er hluti af verkefninu Þjóðleikur sem er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og menningarráðanna á landsbyggðinni. Þegar er búið að sýna leikritið tvisvar sinnum á Hólmavík og óhætt er að segja að það hafi slegið rækilega í gegn. Gróft orðbragð kemur fyrir í sýningunni og ekki er mælt með henni fyrir viðkvæma eða yngri börn. Miðaverð fyrir alla aldurshópa er kr. 1.500.- og miðapantanir eru í s. 894-1941.

Leikhópurinn hefur tekið stefnuna á leiklistarhátíð Þjóðleiks á Akureyri á næstu helgi og þar verður Tjaldið sýnt tvisvar sinnum.