26/04/2024

Viðhorf Vestfirðinga til ferðaþjónustu rannsökuð

Um þessar mundir stendur Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum fyrir könnun meðal Vestfirðinga um viðhorf þeirra til ferðaþjónustu. Markmið könnunarinnar er að fá að vita hvort heimamenn séu ánægðir með uppbyggingu ferðaþjónustunnar, hvort þeir vilja leggja meiri áherslu á ferðaþjónustu sem atvinnugrein á Vestfjörðum eða hvort þeir vilji leggja áherslu á aðrar atvinnugreinar. Rannsóknin var send til eitt þúsund Vestfirðinga.


Að sögn Írisar Hrundar Halldórsdóttur, sem vinnur könnunina ásamt Öldu Davíðsdóttur, hefur ekki borist nóg af svörum og hefur skilafrestur því verið lengdur til 30. nóvember. Íris hvetur þá sem lentu í úrtakinu að skila inn svörunum.