23/04/2024

Umferðaróhöpp í liðinni viku

Í fréttatilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum um helstu verkefni í síðustu viku kemur fram að þá urðu fjögur umferðaróhöpp á Vestfjörðum. Á mánudeginum valt bifreið út af veginum um Breiðadal í Önundarfirði. Ökumaður og þrír farþegar voru í bifreiðinni og voru allir fluttir með sjúkrabifreið á sjúkrahúsið á  Ísafirði. Þá valt bifreið út af veginum um Súgandafjörð á miðvikudaginn, ökumaður var einn í bifreiðinni og reyndist ekki mikið slasaður. Á föstudagskvöldið fór bifreið út af veginum í Álftafirði og hafnaði í sjónum.  Ökumaður og farþegi náðu að komast í land af sjálfsdáðum, nokkuð kaldir og þrekaðir, og voru fluttir á sjúkrahúsið á Ísafirði þar sem þeir voru lagðir inn til eftirlits. Bifreiðarnar sem komu við sögu í þessum óhöppum voru allar fluttar óökuhæfar af vettvangi.

Þessu til viðbótar fór fiskflutningabifreið út af veginum um Tungudal í Skutulsfirði á laugardaginn. Engin slys urðu þar og ekki vitað um skemmdir á bifreiðinni.

Í vikunnu voru fjórir ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur, flestir í nágrenni við Ísafjörð. Sá sem hraðast ók var kærður fyrir að aka á 109 km hraða þar sem hámarkshraði er 80 km/klst. Þá voru þrír ökumenn stöðvaðir á Ísafirði í vikunni fyrir meintan akstur undir áhrifum fíkniefna.