18/04/2024

Vélageymsla fauk í fárviðri

Vélageymsla við bæinn Fell í Kollafirði gjöreyðilagðist í ofsaroki sem gekk yfir svæðið í gær. Svo hvasst var um tíma að fólk sem gekk til gegninga á nærliggjandi bæjum þurfti að ganga með girðingum milli húsa. Á þessu landssvæði getur gert fárviðri í sunnan og suðvestan áttum eins og verið hefur síðasta sólarhringinn. Vélageymslan hefur þó staðið af sér öll vetrarveður á þessum slóðum í nær því hálfa öld.

Á Felli er ekki lengur stundaður hefðbundinn búskapur en þar er rekið sumardvalarheimili fyrir börn og unglinga. Í vélageymslunni sem fauk var dráttarvél auk ýmissa verkfæra og tækja, en ekki er vitað nákvæmlega hversu mikið tjónið er. Hjálp barst frá björgunarsveitinni Dagrenningu í Strandabyggð sem reyndi að festa niður lausamuni þrátt fyrir að enn sé bálhvasst í botni Kollafjarðar. Samkvæmt veðurspá er ekki útlit fyrir að lægi næsta sólarhringinn á þessum slóðum.

Vélageymslan fór illa – ljósm. Guðfinnur S. Finnbogason

Ljósm. Hannes Leifsson