
Frá upphafi hefur Jón Guðbjörn Guðjónsson verið veðurathugunarmaður, en Litla-Ávík er hans heimajörð, þar er hann fæddur og uppalinn. Jón starfaði syðra frá 1968 og var í um tuttugu ár bifreiðarstjóri í Reykjavík. Hann segist hafa verið orðinn þreyttur á keyrslunni og gripið tækifærið þegar Veðurstofan bað hann um að sjá um veðurathugunastöð í sinni gömlu sveit og flutt norður aftur eftir námskeið um ýmislegt sem tengist veðurathugunum.
Auk venjubundinna veðurathugana sér Jón um sjávarhitamælinginar og mælingar á lágmarkshita við jörð, auk nauðsynlegs eftirlits með hafís fyrir hafísdeild Veðurstofu Íslands.

Jón G.G. – mynd af vefsíðunni www.litlihjalli.it.is