29/04/2024

Vaxtarsamningur Vestfjarða auglýsir eftir verkefnahugmyndum

Á HólmavíkHugsanlega hefur það farið fram hjá einhverjum, en Vaxtarsamningur Vestfjarða auglýsti nú í vor eftir verkefnahugmyndum frá þeim sem vilja fá fjárstuðning frá Vaxtarsamningnum. Umsóknarfrestur er til 27. ágúst 2007 og eyðublöð má finna á vef Vaxtarsamningsins – www.vaxvest.is. Skilyrði fyrir fjárstuðningi úr Vaxtarsamningnum er að viðkomandi verkefni tengist uppbyggingu klasa, svo sem stuðningi við stofnun tengslanets, fræðslu og þjálfun, rannsókna- og greiningarvinnu, ráðgjöf eða sameiginleg þróunar- og samstarfsverkefni, sem metin eru í hverju tilfelli.

Ekki er heimilt að veita styrki til fjárfestinga í fyrirtækjum eða reksturs fyrirtækja eða opinberra stofnana, auk þess sem stofnkostnaður er ekki styrkhæfur. Umsóknir þurfa að berast í tölvutæku formi til Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða (arna@atvest.is) á þar til gerðu umsóknareyðublaði auk greinargerðar. Allir umsækjendur þurfa að skila inn greinargerð eða minnisblaði um verkefnið og á það að innihalda ítarlegri upplýsingar um verkefnið, framkvæmd þess, rökstuðning, tengingu við vaxtarsamningin, markmið, árangur, kostnað og tímaramma, fjármögnun og annað sem þurfa þykir.