25/04/2024

Ferðamálasamtök Vestfjarða leggja fram stefnumótun

forsida-stefnumotun2010Undanfarið misseri hafa Ferðamálasamtök Vestfjarða unnið að stefnumótun  vestfirskrar ferðaþjónustu. Haldnir voru stefnumótunarfundir um allan fjórðunginn í þeim tilgangi að ná fram sjónarmiðum flestra þeirra sem starfa eða tengjast inn í greinina. Nokkuð á annað hundrað manns lögðu til hugmyndir í stefnumótunina sem fór fram á nokkrum fundum víðsvegar um Vestfirði, stórum og smáum. Þar var leitað eftir því að aðilar í ferðaþjónustu og aðrir sem koma að greininni legðu til sínar hugmyndir. Þessi stefnumótun er því afrakstur greinarinnar sjálfrar, þar sem hún leggur til hvert skuli stefna í ferðamálum fjórðungsins næstu misserin.

Í stefnumótunarskýrslunni koma fram tölulegar upplýsingar um stöðu ferðaþjónustunnar í fjórðungnum í dag auk þess sem lagðar eru fram verkefnatillögur og aðgerðaráætlanir. Þar eru ákveðnum aðilum í stoðkerfinu gert að taka frumkvæði í ýmsum verkþáttum og stuðla að því að verkin komist í framkvæmd en rykfalli ekki ofan í skúffu.

Vestfirsk ferðaþjónusta hefur verið nokkuð áberandi undanfarið og skorað hátt í viðhorfskönnunum. Samkvæmt þeim hefur greininni vaxið mikið fiskur um hrygg en til að mynda fékk vestfirsk ferðaþjónusta nýverið hæstu einkunn varðandi gæði í ferðaþjónustu í landinu. Sú könnun var framkvæmd af Miðlun ehf og RRF (Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar) og stóð yfir dagana 20. október til 16. nóvember 2010. Þá er vert að minnast á umfjöllum Lonely Planet fyrir árið 2011 sem setur Vestfirði sem áfangastað meðal þeirra 10 staða í heiminum sem standa upp úr.

Vestfirðir hlutu einnig mikilvæga viðurkenningu í haust frá Eden, European Destination of Excellence, verkefni sem unnið er frá Evrópuráðinu og eiga eftir að fá mikla kynningu í gegnum það. Auk þess hafa fleiri aðilar fengið hverskyns viðurkenningar á árinu, s.s. nýtt Farfuglaheimili á Broddanesi í Kollafirði sem lenti á topp 5 lista í heiminum í gæðakönnun sem unnin var af Hostels International eftir viðhorfskönnun meðal viðskiptavina sína.