28/03/2024

Menningarfulltrúi Vestfjarða með aðsetur á Hólmavík

Jón JónssonMenningarráð Vestfjarða hefur samþykkt að ráða Strandamanninn Jón Jónsson í starf menningarfulltrúa Vestfjarða. Alls bárust 11 umsóknir um starfið sem var auglýst í sumar. Jón er með meistarapróf í þjóðfræði frá Háskóla Íslands og á að baki mjög fjölbreytta reynslu af rekstri og stjórnun menningarverkefna. Hann hefur að undanförnu starfað sem framkvæmdastjóri Sögusmiðjunnar, auk þess að vera ritstjóri vefjarins strandir.saudfjarsetur.is. Jón er búsettur á Kirkjubóli við Steingrímsfjörð og mun hafa höfuðstöðvar og starfsaðstöðu á Hólmavík. Jón hefur störf þann 1. september næstkomandi.