01/05/2024

Valið milli tveggja Hamingjulaga

Hamingjulagið 2005Aðeins bárust tvö lög í keppni um lag Hamingjudaga þetta árið. Því hefur verið ákveðið að í stað þess að halda sérstakan viðburð fyrir keppnina eins og til stóð að gera á morgun verði keppnin milli þessara tveggja laga fléttuð inn í tónleika sem fram fara á Hólmavík 18. maí. Þar koma fram nemendur Tónskólans á Hólmavík ásamt fullorðnu tónlistarfólki úr sveitarfélaginu sem leggur þeim lið á þessum tónleikum sem haldnir eru í fjáröflunarskyni.