28/04/2024

Undirbúa sig fyrir leikinn við Ungverja

Heimildarmaður strandir.saudfjarsetur.is í Noregi á EM í handbolta heldur því fram að íslenska landsliðið bruggi núna mikinn seið fyrir leikinn í kvöld. Því eru taldar nokkrar líkur á að íslensku leikmennirnir skori nokkur mörk gegn Ungverjum í kvöld áður en fimmtán mínútur eru liðnar af leiknum og jafnvel nokkur önnur í seinni hálfleik sem eiga að duga til sigurs. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og er sýndur beint á stóru tjaldi á Galdrasafninu á Hólmavík.