20/04/2024

Þrjú stór þróunarverkefni á skilgreindum svæðum

Iðnaðarráðherra hefur ákveðið að ráðstafa 100 milljónum króna af fé
Byggðaáætlunar 2007 – 2009 til þriggja þróunarverkefna í ferðaþjónustu. Í öllum
tilfellum verður auglýst eftir hópum fyrirtækja og einstaklinga í ferðaþjónustu
sem vilja taka þátt í þróunarverkefnum á skilgreindum svæðum. Verkefnin snúa að
þremur sviðum; í fyrsta lagi þróun í menningartengdri ferðaþjónustu; í öðru lagi
auknun gæðum og vöruþróun í ferðaþjónustu og í þriðja lagi að matföngum úr
héraði og áframhaldandi þróun viðfangsefnisins “Beint frá býli”. Ferðamálastofa
mun hafa umsjón með þróunarverkefnunum í samvinnu við IMPRU á Nýsköpunarmiðstöð
Íslands. Framkvæmd og útfærsla verður í höndum framangreindra stofnana en af
hálfu ráðuneytisins hefur verið lögð áhersla á eftirtalin atriði:


Þróun í menningartengdri ferðaþjónustu.

Markmið þessa verkefnis er að
skilgreina sóknarfæri ákveðinna landssvæða og styðja þau í stefnumótun í
menningartengdri ferðaþjónustu. Um verður að ræða greiningarvinnu með
sérfræðingum á sviði menningar, lista, viðburða og markaðsmála á sérkennum og
tækifærum viðkomandi svæðis, auk aðstoðar við vöru- og þjónustuþróun.
Aukin gæði í ferðaþjónustu.
Markmiðið á þessu sviði er að auka
þekkingu á þjónustuþróun og bæta gæði þjónustu og vöru sem leitt geti til
aukinnar arðsemi. Stefnt er að því að samræmd gæðaflokkun og merki verði
innleiddí ferðaþjónustu. Um verður að tefla bæði faglega og fjárhagslega aðstoð
til þess að innleiða þjónustuþróun og gæðakerfi.
Matur úr héraði.
Markmiðið með “Mat úr héraði” er að efla sérkenni
íslenskrar ferðaþjónustu með auknum tengslum við hefðbundna matargerð. Byggt
verður á verkefninu "Beint frá býli", sem stuðlaði að framleiðslu matvæla á
sveitabýlum og milliliðalausri sölu þeirra til neytenda. Að verkefninu hafa m.a.
staðið Háskólinn á Hólum, Lifandi landbúnaður, Félag ferðaþjónustubænda,
Landbúnaðarháskóli Íslands, Bændasamtök Íslands og Impra á Nýsköpunarstöð
Íslands. Næstu skref eru að mynda samstarfshóp væntanlegra framleiðenda, samtaka
í ferðaþjónustu, og fulltrúa úr stoðkerfi atvinnu- og iðnþróunar til að vinna að
því að þroska enn frekar hugmyndir um framleiðslu og sölu beint frá býli.
Verkefninu er ætlað að ná yfir þriggja ára tímabil 2008, 2009 og 2010.