26/04/2024

Súpufundur á Borðeyri um atvinnu- og menningarmál

Þróunarsetrið á Hólmavík mun efna til atvinnu- og menningarsýningar á Ströndum 29. ágúst 2009 í samstarfi við ferðaþjónustuklasann Arnkötlu 2008. Sýningin verður haldin í Félagsheimilinu á Hólmavík og er markmiðið tvíþætt. Annars vegar að efla tengsl milli ólíkra svæða og athafna á Ströndum og hins vegar að efla ímynd Stranda út á við. Þetta verkefni er framhald súpufundanna sem haldnir voru vikulega í vetur á Café Riis á Hólmavík. Af þessu tilefni verður súpufundur í Grunnskólanum á Borðeyri kl. 12:00 fimmtudaginn 2. júlí þar sem gerð verður grein fyrir verkefninu.

Þegar hafa verið haldnir þrír súpufundir, á Café Riis á Hólmavík, Drangsnesi og í Norðurfirði. Fundirnir hafa verið ágætlega sóttir og er mikill hugur í Strandamönnum um að taka virkan þátt í verkefninu.

Vaxtarsamningur Vestfjarða og Menningarráð Vestfjarða eru styrktaraðilar að verkefninu, en fyrirtækið AssA, þekking & þjálfun, í Trékyllisvík sér um framkvæmd sýningarinnar í haust. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar hjá Ingibjörgu Valgeirsdóttur í síma 451 4025 eða senda fyrirspurn og þátttökuskráningu í netfangið ingibjorg@assaisland.is