27/04/2024

Styrkir til að efla þróun og ræktun íslenska hestsins

StrandahestarSjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um styrki úr þróunarfjárframlagi til hrossaræktar. Markmið styrkveitinganna er að efla þróun og ræktun íslenska hestsins og fylgja þannig eftir árangri þeim er náðst hefur í aukinni fagmennsku í hrossarækt og þjálfun íslenska hestsins. Lögð er megin áhersla á að styrkja átaks- og nýsköpunarverkefni sem geta orðið sjálfbær eftir að þróunartímabili þeirra lýkur, útgáfu- og kynningarstarfsemi og hagnýtar rannsóknir. Samkvæmt fjárlögum ársins 2011 hefur sjóðurinn til ráðstöfunar 6 milljónir króna.

Styrkhæf eru hverskonar verkefni er lúta að:

A. Kynbótum hrossa, fóðrun þeirra eða meðferð.
B. Tamningum og þjálfun hrossa sem stuðla að auknum árangri og ávinningi.
C. Kynningar- og nýsköpunarstarfi.

Umsóknir skulu berast ráðuneytinu eigi síðar en 15. febrúar 2011. Í umsóknum skal gerð skýr grein fyrir verkefninu sem í hlut á; markmiði þess, framkvæmdaáætlun og ætluðum ávinningi. Hverri umsókn skal fylgja greinargóð kostnaðaráætlun.

Póstfang:
Þróunarfjárnefnd hrossaræktarinnar
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu
Skúlagötu 4
150 Rekjavík.

Nánari upplýsingar veitir: Kristinn Hugason í síma 545 8300, tölvufang: kristinn.hugason@slr.stjr.is.